banner_foreldrar_og_skolaborn_779x195pixl


hfj_vitinn_nafn

Foreldraráð Hafnarfjarðar er samráðsvettvangur og málsvari foreldra grunnskólabarna í Hafnarfirði. Foreldrar bæjarins eiga því í ráðinu fulltrúa sem sinna ýmsum hagsmunamálum barna og foreldra Hafnarfjarðar. Í foreldraráði sitja a.m.k. tveir fulltrúar foreldrafélaga úr hverjum grunnskóla bæjarins og situr annar fulltrúinn í skólaráði síns skóla. 

Foreldraráð vinnur að sameiginlegum málefnum skólanna og gefur umsagnir um ýmis mál er varða skóla- og fjölskyldumál. Samstarfið gerir foreldrafulltrúum kleift að vera í nánu sambandi og fylgjast með því helsta sem fram fer í grunnskólunum. Foreldraráðið fundar á 4 til 6 vikna fresti yfir veturinn, oftar ef þurfa þykir. Foreldraráðið er í góðum samskiptum við Heimi og skóla, hefur fundað með forsvarsmönnum íþrótta- og tómstundafélaga, lögreglunni, forvarnarfulltrúa og tónlistaskóla bæjarins.

Fulltrúar í foreldraráðinu skipta með sér verkum og setja sér starfsreglur. Þeir tilnefna áheyrnarfulltrúa í skólanefnd sveitarfélaga samkvæmt grunnskólalögum, í Hafnarfirði fræðsluráð. Áheyrnarfulltrúi foreldra í fræðsluráði hefur áheyrnar- og tillögurétt í ráðinu en ekki atkvæðisrétt. Einnig skipar ráðið talsmann þess sem tekur sæti áheyrnarfulltrúa í forföllum hans. Jafnframt skipar ráðið fulltrúa í svæðasamtök í landsamtökum foreldra, Heimili og skóli.

Fulltrúi foreldraráðsins í fræðsluráð Hafnarfjarðar er Sveindís Jóhannsdóttir (sveindis@talnet.is) frá hausti 2010.

Varamaður hennar er Jóhanna Sveinbjörg B. Traustadóttir (
foreldrarad@hafnarfjordur.is)
sem jafnframt er talsmaður foreldraráðsins frá hausti 2011.

Fulltrúi foreldraráðsins í landssamtökum foreldra er Gréta Jónsdóttir (
gretajonsdottir@internet.is) frá hausti 2010.



                              Foreldraráð Hafnarfjarðar
| Kríuás 47 | 221 Hafnarfirði | GSM 696 3869|  foreldrarad@hafnarfjordur.is